Það fer eftir því hvað verið er að sauma hvaða tvinna þú vilt nota. Í sauma sem reynir mikið á, t.d. samansaum á vinnufatnaði er betra að nota grófari þráð, þ.e. grófleika 80, þar sem hann er sterkari. Í sauma þar sem minna mæðir á og við földun og þess háttar, er fínni þráður oft notaður, þ.e. grófleiki 120.
Dual duty tvinninn er sterkur tvinni og er t.d. notaður í gallaflíkur, seglasaum, dýnusaum og sem stungutvinni.