Við overlock er oftast notaður frekar fínn þráður, þ.e. grófleiki 120. Ef verið er að overlocka grófari efni svo sem ull eða flís getur hentað betur að nota grófari þráð, þ.e. grófleika 80.
Óspunninn þráður (Gramax) er notaður í "yfirkastið", þ.e. sem sá þráður sem fer yfir kantinn við overlocksaum. Hann fellur betur að efninu og þekur betur kantinn en spunninn þráður og gefur fallegan frágang. Hann gefur einnig betur eftir sem er góður kostur þegar verið er að sauma teygjanleg efni eins og ull eða flís.