Sunday, May 20, 2012
Þú ert hér:  VörurSaumavélar
 
SAUMAVÉLAR Minimize

B. Ingvarsson ehf. hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á JUKI saumavélum. JUKI er einn fremsti framleiðandi iðnaðarsaumavéla í heiminum í dag og áratuga reynsla er af JUKI saumavélum á íslenskum markaði.
JUKI framleiðir einnig heimilisvélar, bæði venjulegar saumavélar og overlockvélar.

Einnig höfum við til sölu blindföldunarvélar frá GLOBAL og flatsaumsvélar frá BABYLOCK.
Við getum jafnframt útvegað flestar aðrar gerðir af sérhæfðum saumavélum.

B. Ingvarsson ehf. selur einnig og þjónustar útsaumsvélar (embroidery) frá Tajima.

Hér til hægri má sjá helstu vélarnar sem við erum með.

Hafið samband til að fá frekari upplýsingar um vélar og verð.

Enter Title Minimize

 JUKI 9000B
Hljóðlát, tölvustýrð beinsaumsvél. Með sjálfvirkum heftingum í byrjun og enda saums, rafmagnsfótlyftu og klippum. 

 Sjá nánari upplýsingar hér (.pdf 786KB)

 

 JUKI MO-6700S
Iðnaðar overlockvélar.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 421KB)

 

 JUKI HZL-F600 heimilisvél
Tölvustýrð saumavél með klippum, hentar vel bæði í fatasaum og bútasaum. 225 sporgerðir og 4 leturgerðir. 16 gerðir hnappagata og hægt að víkka hnappagatið. Líkir eftir handsaum með "random stich". Sér mótor fyrir spólun á undirtvinna. Hnéspaði fylgir með fyrir saumfótslyftu - ekki þarf að sleppa höndum af efninu til að lyfta saumfætinum. Hægt að sauma án fótstigs, niðurfellanlegur flytjari og fleira. 12 saumfætur fylgja með auk vinnuborðs (sjá mynd). Gott saumarými.

Sjá nánari upplýsingar hér.
   JUKI HZL-G210 heimilisvél
Tölvustýrð saumavél með klippum, hentar vel bæði í fatasaum og bútasaum. 180 sporgerðir, þar af ein leturgerð.
Gott pláss frá nál og að vél. Hægt að sauma án fótstigs.

Sjá nánari upplýsingar hér.
 

 JUKI HZL-G110 heimilisvél
Tölvustýrð saumavél, hentar vel bæði í fatasaum og bútasaum. 180 sporgerðir, þar af ein leturgerð. Gott pláss frá nál og að vél. Hægt að sauma án fótstigs.

Sjá nánari upplýsingar hér.

   JUKI E-80 heimilisvél.
Tölvustýrð saumavél með 150 sporgerðum, þar á meðal 8 hnappagöt. Hægt að sauma án fótstigs. Sjálfvirkur hnappagatasaumur, niðurfellanlegur flytjari og fleira.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 1,1MB)

   JUKI E-61 heimilisvél.
Tölvustýrð saumavél með 20 sporgerðum, þar á meðal 3 hnappagöt. Hægt að sauma án fótstigs. Sjálfvirkur hnappagatasaumur, niðurfellanlegur flytjari og fleira.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 968KB)

  JUKI 35Z heimilisvél
Einföld saumavél með 35 sporgerðum, hægt að stilla sporbreidd, hnappagöt gerð í einu lagi eins og hjá tölvuvélum.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 2.0MB)

JUKI 27Z heimilisvél
Einföld saumavél með 22 sporgerðum, hnappagöt gerð í 4 skrefum.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 934 KB)

 

 JUKI TL-98 P Quiltvél
Beinsaumsvél til Quilteringar. Tvenns konar quiltfætur fylgja, flytjari er felldur niður með einum takka. Fótstýrðar þráðklippur. Hægt er að lyfta saumfæti með hnjástöng.
Hentar einnig vel sem hraðvirk beinsaumsvél í fatasaum og fl.

Sjá nánari upplýsingar hér.

 

 JUKI MO-644D heimilis overlockvél
Fjögurra þráða overlockvél með innbyggðum mismunaflutningi fyrir teygjanleg efni s.s. prjónaefni. Er með 4-8mm breiðu spori.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 341KB)

 



 JUKI MO-654DE heimilis overlockvél
Fjögurra þráða overlockvél með innbyggðum mismunaflutningi fyrir teygjanleg efni s.s. prjónaefni. Er með 4-6mm breiðu spori.
Íslenskar leiðbeiningar fylgja.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 341KB)

 JUKI MO-734DE heimilis overlockvél
Fjögurra þráða overlockvél með innbyggðum mismunaflutningi fyrir teygjanleg efni s.s. prjóna- og flísefni. Er með 5-7mm breiðu spori og skúffu fyrir afskurð.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 1 MB)

 

 JUKI MO-735 heimilis overlockvél
Fimm þráða overlock- og flatsaumsvél. 11 sporgerðir, þar á meðal 2 eða 3 nála flatsaumur, keðjuspor og rúllufaldur. Mismunaflutningur fyrir teygjanleg efni s.s. prjónaefni. Er með 5-7mm breiðu spori og skúffu fyrir afskurð.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 1 MB)

 

 GLOBAL blindföldunarvél
Einkar hentug fyrir breytingastofur og minni saumastofur.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 166KB)

 

 BABYLOCK flatsaumsvél
Þriggja nála, fjögurra þráða flatsaumsvél, einkar hentug í földun. "Jet-Air" þræðing fyrir gríparann. 3-6mm sporbreidd.

Sjá nánari upplýsingar hér. (.pdf 508KB)

 BABYLOCK embellisher
Tólf nála þæfing, notar engan tvinna heldur þæfir efni saman líkt og gert er með nálarþæfingu. Býður upp á marga notkunarmöguleika.

Sjá nánari upplýsingar hér.

 TAJIMA TEJT-II-C
Eins hausa, 15 nála (þráða) útsaumsvél. Hámarkshraði 1200 spor pr. mínútu. Innbyggt minni fyrir 64.000 spor. Sjálfvirkar klippur fyrir undir og yfirtvinna.

Sjá nánari upplýsingar hér.

Hlekkir Minimize

 

Adobe Reader Minimize
B. Ingvarsson ehf. - Bíldshöfði 18 - 110 Reykjavík - Sími: 588 9977 - Fax: 588 9976 - Netfang: bingvarsson@simnet.is
Privacy Statement | Terms Of Use
 
);