Í verslun okkar er ágætt úrval af ýmsum fylgihlutum fyrir saumaskap, s.s. málbönd, sprettuhnífar, krítar og fleira. Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af þessum vörum.
Vinsamlegast hafið samband til að fá nánari upplýsingar.

|
Nokkrar gerðir af málböndum:
- cm báðum megin
- cm og tommur
- inndraganleg á rúllu
|

|
Sprettuhnífar |

|
Pinsettur |
 |
Sætur tvinnahnífur til að hafa um hálsinn. Hentar einnig vel fyrir handútsaum. |

|
Krítarpenni.
Pakkning með penna, yddara og 16 fyllingum, þar af 8 í lit og 8 hvítar.
Áfylling seld sér, með 16 fyllingum. |

|
Krítar, vax, kalk og kalk sem hverfur. |

|
Slitband 15,5 mm. 100% Polyester, þolir 60°C þvott.
Til í svörtu og brúnu. Hægt er að sérpanta aðra liti. |
 |
Tilbúin númerabönd, ofin.
Eigum til algengustu númerin á lager, svartir stafir á hvítum grunni.
Einnig hægt að sérpanta svört númerabönd og prentuð númerabönd. |

|
Saumfætur og aðrir fylgihlutir fyrir þær saumavélar sem við seljum. |
 |
Plata til að festa poka fyrir afskurð undir overlockvélar sem ekki eru með áfastri skúffu. Afskurður safnast þá í pokann sem auðvelt er svo að tæma.
Passar m.a. undir JUKI og BABY LOCK vélar.
|
 |
Derhúfuhengi (Caprack) sem tekur 24 húfur.
12 klemmur, hver klemma tekur tvær húfur.
Frábært bæði fyrir þá sem vilja sýna derhúfur og þá sem vilja geyma húfurnar sínar á aðgengilegan hátt.
|
 |
Cap curver - spenna til að móta der á derhúfum. |
 |
Cap cleaner hreinsiefni fyrir derhúfur. Hreinsar og eyðir lykt. |