Þvottamiðar og logo-miðar
Við prentum á staðnum miða til að setja inn í flíkur, t.d. þvottaleiðbeiningar eða logo-miða. Við bjóðum upp á hvíta nylon miða og satínmiða með svörtu, rauðu, bláu eða gráu letri, í nokkrum stærðum (sjá hér til hliðar). Einnig svarta satínmiða með gylltu eða hvítu letri.
Hægt er að prenta tilbúin logo á miðana og þarf þá að senda þau til okkar á .bmp formi í svarthvítu.
Verð á miðunum fer eftir breidd þeirra, lengd og gerð bæði miða og prentborða.
Lágmarkspöntun er 100 stk.
Nafnamiðar
Við prentum sniðuga nafnamiða sem hægt er að strauja eða sauma inn í flíkur. Tilvalið fyrir barnafötin t.d. fyrir leikskóla, skóla og íþróttir.
Nafn og sími er prentað tvisvar á hvern miða og því fást tveir merkimiðar úr hverjum miða.
Lágmarkspöntun er 10 stk. sem verða 20 merkimiðar.
Númerabönd
Höfum til sölu ofin númerabönd, hvít með svörtu letri og svört með hvítu letri. Á hverri rúllu eru 1000 stk. Koma með S-M-L merkingum og með númerum (t.d. 1-2-3..., 8-10-12... 34-36-38...).
Getum einnig útvegað prentuð númerabönd, hvít með svörtum eða rauðum stöfum.